blogg Óla Krull
Vinir, vandamenn og aðrir bjánar
12.03.2008 14:55:24 / olikrull

Hvað er málið

Nú sit ég og reyni að læra fyrir próf sem ég er að fara í á morgun. Vonandi síðasta prófið í þessu sem ég þarf taka.....General Navigation. En eins og svo oft áður þá bara hef ég það ekki í mér að sitja klukkustundum saman og einbeita mér að þessu efni. Ég þarf alltaf að finna mér eitthvað annað að gera.....nú og ef ég hef ekkert annað að gera þá fer hugurinn bara eitthvað á flakk og ég gleymi alveg því sem ég er að lesa um. 8|
Hef aldrei verið neinn voðalegur lærdómshestur.....ef ég kann hlutinn þá bara kann ég hann....lítið sem smá próflestur gerir mér eitthvað gagn.
En ég verð að reyna læra eitthvað.....ekki nógu bjartsýnn fyrir þetta eins og er!! :$

Krullan

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 00:23:19 / olikrull

101 uppbygging hvað!

Um daginn ákvað ég að rölta allan Laugarveginn....ekki gert það mjög lengi. Byrjaði á Snorrabraut og endaði í Bankastrætinu. Mér til mikillar skelfingar þá held ég án gríns að cirka þriðja hvert verslunarhúsnæði frá Snorrabraut og að Skífunni sé tómt!! Í glugganum skilti sem á stendur "Til leigu" eða "Erum flutt í blablabla"!!
Til hvers að byggja upp "gamla miðbæinn" ef enginn nennir að vera þar með verslun? Ég skil svosem að enginn hafi áhuga á að reka fyrirtæki á Laugarveginum ef það er ekkert uppúr því að hafa.....hvernig er hægt að breyta þessari þróun? Er ekki bara hægt að byggja skýli yfir allt plássið þannig að þetta sé þá hálfgert "mall", fyrst það virðist vera það sem Íslendingar vilja í dag? En sona án gríns þá bara brá mér að sjá hvað mikið af húsnæði þarna er orðið tómt. Rótgrónar verslanir á borð við P.Eyfeld, sem útvegað hefur íslenskum stúdentum útskriftarhúfur sínar í þúsund ár, er flutt í Hlíðasmára.......sorglegt en satt!

Ég veit ekki nákvæmlega hver stefna borgaryfirvalda er í þessu máli, finnst þeir hafa flakkað doltið með þetta fram og tilbaka. En það er nokkuð ljóst að "gamli miðbærinn" er verr á sig kominn en ég hélt og ég er ekki viss um að margir geri sér grein fyrir því hversu slæmt ástandið er orðið! Ef það á að bjarga miðbænum þá þarf að gera það fljótt og stefnan þarf að vera skýr......en hvað viljum við þarna? 8|

Krullan



» 1 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 18:27:34 / olikrull

Já sæll!!!

Össss.....kallinn bara óendanlega duglegur hérna inni! Held þetta sé ekki alveg mitt cup of tea....að blogga það er að segja!!

En sona fyrir ykkur fáu áhugasömu sálir þá skal ég reyna að halda þessu eitthvað við. Hef lítið verið að bralla að undaförnu, bara same shit different day. Fer í 2 próf núna í byrjun mars og ef æðri máttarvöld sýna mér skilning og miskunn þá næ ég þeim og þarf ekki að hafa meiri áhyggjur af því lengur. Er nú kominn með góða hvatningu til að klára þetta blessaða flugnám, og verður allt gert til að klára það endanlega fyrir sumarið. Hver veit hvað það hefur svo uppá að bjóða! :lol:

Ég ætla mér ekki að taka neitt sérstakt sumarfrí í sumar nema kannski einn og einn dag inná milli svo ég komist í alla veiðitúrana sem ég er búinn að plana.....gott ef ég er ekki bara á góðri leið með að líkjast gamla kallinum í þessum efnum! ;) Ég hinsvegar er á leiðinni til Flórída núna í byrjun apríl. Ég og Gummi ætlum að skella okkur í sólina í rúma viku...ekki slæmt það, sérstaklega þar sem gott veður hefur heldur betur verið á undanhaldi hér á Fróni síðan síðasta sumar! Það er munur að geta ferðast á sona "frímiðum", maður á þá frekar möguleika að gera eitthvað sniðugt og leyfa sér aðeins betri og skemmtilegri ferðir. :p

Þegar ég segi í lok hvers bloggs, "krullan kveður", þá á ég nú ekki við að ég kveðji endanlega. Ég lofa að reyna allavega að vera aðeins duglegri hérna.....sjáum til hvernig það gengur! 8|

Krullan kveður......

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 03:15:40 / olikrull

Ain´t no sunshine!

Jæja gott fólk, damn hvað ég er duglegur að blogga!! :)  Sumarinu að ljúka og við tekur yndislegur kuldi og hrollur í 9 mánuði, hver getur ekki verið að hlakka til þess!!

Það líður að prófum hjá mér aftur, 6 stykki í fyrri hluta september....kannski ég fari að huga eitthvað að þeim :$ Annars alveg nóg að gera, hef varla tíma til að spá í þessi próf. Ég flyt núna um mánaðarmótin.....loksins!!! Úr foreldrahúsum og í siðmenninguna í 101 Rvk, ekki leiðinlegt það.

Það er voðalega mikið um flótta af landi brott í kringum mig, margir vinir að flýja land og hreiðra um sig meðal kommúnista, femenista og grænmetisæta. Ég er næstum kominn á það stig að kvíða veturs, það verði bara einfaldlega orðnir svo fáir vinir eftir að við verðum öll komin með leið á hvor öðru fyrir jól. En ég örvænti ekki því ég og Hafsteinn ætlum að sjálfsögðu að fjárfesta í Sýn 2, svo ég get horft á enska boltann að vild, hann fær aldrei leið á mér!!! ;)

 Snillingurinn í augnablikinu er:  Æðsti Strumpur

                                       papa_smurf.jpg

 

Krullan kveður


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 01:47:30 / olikrull

Hitt og þetta!

Skrapp til Kölnar á mánudaginn síðasta og kom heim snemma í morgun. Aldrei hef ég komið til Þýskalands og satt best að segja aldrei langað neitt sérstaklega þangað, eitthvað sem ég var bara búinn að bíta í mig. En þetta kom bara skemmtilega á óvart og var mjög fín ferð. Ég og Halldór flugum til Frankfurt á mánudagsmorgun, lest yfir til Kölnar og þar höfðum við það gott í góðu yfirlæti á topp hóteli í 2 nætur.  Röltum um bæinn, drukkum nokkra öl og kokteila, já Halldór vildi það endilega. Fórum svo í GoKart á Michael Schumacher brautinni, hann lét byggja þetta og mér skilst að fjölskyldan hans reki allt batteríið. Skemmst frá því að segja að þetta var auðvitað geggjað stuð og ég tók Halldór náttúrulega alveg bakaríið :lol: eða svona nokkurn veginn!  Við komum svo heim með Bláfuglinum í morgun, ekki mikill sjarmör að fljúga með svona cargo vél....ekki alveg jafn huggulegt og hjá Tom Hanks í Fedex vélinni í Cast Away. Maður situr bara á litlu flugfreyjusæti, plássið voðalega lítið, skítkalt og engir almennilegir gluggar til að sjá út.....þannnig að maður veit basically ekkert hvað er í gangi! :S  En flugmennirnir voru nú almennilegir og buðu mér frammí síðasta klukkutímann, það var töluvert skárra.

Einhver bið verður á því að ég flytji í Skaftahlíðina. Það voru ljótar rakaskemmdir á 2 veggjum og ákveðið að gera við það, kemur í ljós á sunnudag hvort ég geti flutt inn í næstu viku eða hvort það taki lengri tíma en það....vonum það besta!.

Annars er sumarfríinu mínu að ljúka bráðum, það verður bara gott að komast í vinnuna aftur held ég, maður hefur ekki gott af því að hanga í rólegheitum of lengi.

Svo langaði mig nú aðeins að lýsa hneykslun minni á frétt frá því áðan. Pólverjinn sem nauðgaði stelpunni á klósettinu á Hótel Sögu var sýknaður!!! 8| Hvað í ósköpunum þarf eiginlega til að fá svona menn seka?? Áverkar á stelpunni, skýrsla sálfræðings og lækna var ekki nóg, held að þessir dómarar eigi bara að skammast sín og huga að því að skipta um vinnu fyrst þeir hafa ekki manndóm í sér að sjá hvað er rétt og hvað ekki!  Skil bara ekki hvernig dómskerfið hérna getur verið svona lélegt. Barnaníðingar fá nokkra mánuði, kannski 1-2 ár í fangelsi. Nauðgarar sleppa oftast, ef ekki þá er það eitthvað svipað, 1-2 ár í mesta lagi. En svo eru einhver burðardýr, yfirleitt fólk í peningaskuld við eiturlyfjasala, þau eru send í fangelsi allt upp í 7 ár fyrir að reyna smygla inn eiturlyfjum.....er ekki hægt að samræma þetta eitthvað, er það svo erfitt? :$

Lifið heil, bið að heilsa í bili,

Krullan

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 12:49:12 / olikrull

Sonasona Óli minn! :)

Er það ekki alveg fullkomlega eðlilegt að skapið rokki alveg dag frá degi?  Ég allavega upplifi það núna undanfarið að ég er rosalega misjafn á milli daga. Suma daga vakna ég snemma, fullur af orku og dríf mig í ræktina.....svo aðra daga, eins og núna, nenni ég ekki neinu og finnst allt ómögulegt!!! 8|

 Ég er á leiðinni út til Kölnar á sunnudag, búinn að bóka miða og alles. Þetta er nú bara stutt stopp en það er allt í lagi, langaði svo svakalega til að skreppa eitthvað. Fer með honum Halldóri sem vinnur með mér hjá Bláfugli, hann þarf reyndar eitthvað að vinna þarna úti en samt ekki svo mikið. Það er eitt ákveðið og það er að fara í GoKart brautina hans Michael Schumacher.....hún er víst alveg geðveikt flott. Ekki veitir heldur af, ég hefði gott af því að keyra eins og vitleysingur, aðeins að losa smá steam!!!

Fór og skoðaði íbúðina í Skaftahlíðinni í gær, hún er ágæt, ekki stór....var eiginlega að vonast eftir pínulítið stærra. En það verður bara að duga í bili, það er ekki fyrir "heilbrigðan" 28 ára gamlan piparsvein að búa heima hjá foreldrum sínum í fleiri mánuði!!! :D  Svo er bara að bíða og sjá hvort íbúðin á Vesturgötunni detti inn aftur.....mikið væri það nú ánægjulegt, krossleggjum fingurna!

Jæja elskurnar mínar (þið örfáu sem skoðið þetta :)), ég ætla að pilla mér í ræktina!

Krullan


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 12:07:34 / olikrull

Sumarfrí.....vey!

Það er nú alveg ágætt að vera sona í sumarfríi, þó ég vildi nú auðvitað hafa eitthvað aðeins meira fyrir stafni....en ohh well.  Ég er búinn að ákveða alveg örugglega um það bil 10 utanlandsferðir í þessu fríi en hætt svo við mjög fljótt aftur! :lol:

Ég flyt um næstu helgi, í Skaftahlíðina. Var búinn að ákveða að taka íbúðina á Vesturgötu en svo fór það allt í einhvern baklás og því varð Skaftahlíðin fyrir valinu....á samt enn eftir að sjá íbúðina! :S

Hef mikið verið spurður að því undafarið hvort það sé ekki erfitt að vera KRingur þessa dagana. Ég segi nú yfirleitt neinei, nenni ekki að vera velta þessu of mikið fyrir mér og svekkja mig. En svo fer ég að spá......urðum meistarar í körfunni, stelpurnar eru taplausar í fótboltanum, ég meina, það getur bara ekki gengið alltaf vel á öllum vígstöðvum!!! :D  Annars hef ég fundið annað lið sem gaman er að fylgjast með þó það gangi ekkert sérlega vel....Knattspyrnufélagið Styrmir. Sá leik með þeim í gærkvöldi og voru þeir bara nokkuð góðir, allavega töluvert betri en ég þorði að gera ráð fyrir, lokatölur 7-1 tap. Hafsteinn vinur minn stóð á hliðarlínunni og stjórnaði eins og herforingi.....slappur í bakinu en ætlar að vera með í næsta leik. Ég er meira að segja að spá í að kíkja á æfingu með þeim í kvöld.....kannski ég spili svo með þeim eitthvað pínulítið í sumar. :)

Fólk er ekki nógu duglegt að commenta, ég augýsti síðast eftir hugmyndum...fékk engar. Nú auglýsi ég aftur eftir hugmyndum til að gera í fríinu!!!

 Krullan kveður í bili!

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 00:41:09 / olikrull

Próf smóf

Er að fara í tvö próf á morgun.....þau síðustu núna, svo tek ég restina í haust. Búinn að reyna að vera duglegur í dag að læra, tekist ágætlega. Hef engar áhyggjur af öðru þeirra en verð meira stressaður yfir hinu með hverjum klukkutímanum sem líður. :^) Hélt að það væri ekkert mál, en mér varð eitthvað á í messunni, er orðinn alveg ringlaður yfir þessu. Það þýðir svosem ekkert að væla yfir því, vona bara að maður fái góðar spurningar, og ef ég veit ekki svarið þá giska ég á B eða C, það er svona alveg basic.

Annars er ég líka að byrja í sumarfríi á morgun. Yfirleitt er ég hæstánægður yfir því, en í þetta skipti er ég ekki alveg viss því ég hef ekkert planað og veit bara ekki alveg hvað ég á að gera af mér annað en að reyna vera duglegur í ræktinni. :$ Ef einhver hefur sniðugar tillögur þá óska ég hérmeð eftir þeim!!!!

Svo eru það íbúðarmálin...nú bara virðist ég vera orðinn eftirsóttasti leigjandinn á markaðnum. :haha: Í dag bauðst mér íbúð á Vesturgötu til leigu....einstaklingsíbúð á 4.hæð, með fínar svalir og alles. Góður díll hvernig sem á það er litið....ekki alveg endanlega komið á hreint en nokkuð solid, flyt væntanlega um mánaðarmótin þangað.

Jæja, ætli það sé ekki bara nokkuð sniðug hugmynd að fara yfir nokkrar spurningar fyrir svefninn.......svo bara vaknað eldsnemma, rækt og lærdómur!! :D

 Krullan loggar sig út......


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 21:52:58 / olikrull

Ræktin.......skrokkasýningin!

Gleymdi alveg að minnast á það í síðustu færslu að ég verslaði mér kort í Laugum, 3 mánaða kort, nú á sko að taka á því og koma sér í form.

Ég er búinn að fara nokkrum sinnum síðan ég keypti kortið í síðustu viku. Fyrstu 2 skiptin átti ég ekki til orð yfir öllum flottu skvísunum sem eru þarna í workout. En svo hef ég sona aðeins verið að pæla í þessu og uppgötvað doltið fyndið. Ég held það sé ekki nema sona kannski 2/3 þarna virkilega til að æfa. Hinn hópurinn eru strákar og stelpur, karlar og konur, sem mæta bara til að sýna sig og sjá aðra. Þarna er fólk sem eyðir klukkutímum í að undirbúa lúkkið áður en farið er í salinn, svipað og fólk á leiðinni á djammið. Stelpur sem ganga um svo stíf meikaðar að það er ekki séns að þær taki upp á því að svitna pínu og eyðileggja "andlitið". Svo eru strákar þarna sem ganga um í hlýrabolum, labba aðeins á hlaupabrettinu, hanga í kringum bekkpressuna án þess að lyfta nokkurn tímann. Þetta er nokkuð merkilegt að sjá, og reyndar bara bráðfyndið. Á sama tíma og þetta fólk spókar sig erum við hin lafmóð, eldrauð í framan og það lekur af okkur svitinn........það sem maður leggur á sig til að komast í form!!! :)

 Lifið heil......í formi!!

Krullan


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 22:04:46 / olikrull

Back to school!

Þar sem ég gerðist svo agalegur kjáni að trassa verklega hlutanum af flugnáminu mínu, þá er ég svo einstaklega heppinn að fá tækifæri til að taka öll bóklegu prófin aftur!!! :$ Eftir að hafa skoðað þetta aðeins ákvað ég að drífa mig í þessu og skráði mig í 4 próf nú í byrjun júní. Ég keypti mér aðgang að spurningabankanum sem er notaður.....já, ótrúlega þægilegt að geta gert það, en hver í ósköpunum getur lagt á minnið um það bil 6000 krossaspurningar!! 8| Hafði tæpar tvær vikur og svo var fyrsta próf í gær, Operational Procedures.....og tel ég mig bara hafað spjarað mig alveg hreint bærilega. Prófið var 50 krossaspurningar og 1 klst. og 20 mín til stefnu, labbaði út eftir hálftíma nokkuð ánægður bara. 3 próf eftir, og næst á dagskrá er Human Performance, en til eru einar 850 spurningar bara í því eina fagi....af nógu að taka!

Skellti mér til Köben um síðustu helgi, bara stutt stopp, út á föstudegi og heim á sunnudegi. Ákvað þetta með dags fyrirvara. Pabbi var úti með hópi af vinnufélögum og voru þeir með miða á Danmörk - Svíþjóð á Parken á laugardag, hann hringdi og sagðist vera með auka miða þannig að ég skellti mér bara út og fór með. Ekki get ég nú sagt að ég sjá eftir að hafa farið. 3-3 leikur, óendanlega spennandi og endir sem fer án efa í sögubækurnar. Danskur áhorfandi, sem sat meira að segja rétt fyrir neðan mig, óð inná völlinn í lok leiks og lamdi dómarann í reiðiskasti. Kallgreyið (dómarinn) staulaðist útaf og blés leikinn af, Svíum dæmdur sigur 0-3. Alveg hreint magnað! :!:

Annars er nú bara mest lítið að frétta. Er að fara í sumarfrí fljótlega, spá í að skella mér með vinnufélaga til Kölnar yfir eina helgi. Kominn tími til að nýta sér vinnuaðstöðuna og skjótast með Bláfuglinum út. Svo verður vonandi farið í 1-2 veiðiferðir líka.:D

Jæja, Krullan kveður að sinni, over and out!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 17:41:57 / olikrull

Pólitík.....hvað?

Jæja, stór helgi framundan, Eurovision, kosningar og svo má alls ekki gleyma stórammæli mömmu!! Kannski ég byrji á Eurovision. Held barasta að þetta sé í fyrsta skipti sem við erum í þessari forkeppni að ég held að við eigum hugsanlega möguleika á að fara áfram. Þó Eiríkur sé orðinn gamall rokkari, rauðhærður og með sítt hár þá virðist hann kunna á fjölmiðlana þarna úti og er að vinna sér töluvert lof.......og því stækkar stuðningshópur Íslendinga fyrir vikið! Maður fylgist auðvitað með þessu af gömlum vana og sötrar öl með.

Svo eru það kosningarnar. Held það sé nú ekki seinna vænna fyrir mig að fara mynda mér almennilega skoðun og taka ákvörðun um hver fær mitt atkvæði. Annars er þetta svona nokkuð ljóst hjá mér. Ekki Samfylking.....hópur fólks úr ýmsum áttum sem ég bara einfaldlega treysti ekki til að stjórna, en ég fíla samt Össur! Ekki Vinstri Græna.....þeir eru bara einfaldlega á móti öllu. Er alveg sammála því samt að nú megi fara að slaka á í stóriðjuframkvæmdum. Framsókn, never again, gert þau mistök áður og ætla mér ekki að gera aftur! Ekki djókflokkana...Ómar og co, og svo gamla fólkið, ætla ekkert að rökstyðja það. Frjálsyndir.....well það eina góða við þá er að þeir eru eini flokkurinn sem vilja flugvöllinn óbreyttan í Reykjavík, og sem flugmaður styð ég það auðvitað! ;) Svo er það Sjálfstæðisflokkurinn, mikið af ágætu og frambærilegu fólki þar. Hafa gert margt gott, en margt sem þeir hefðu líka getað farið betur að. Svo er það stórmálið við þá, og það sem gerir það að verkum að ég á erfitt með að gefa þeim mitt atkvæði.....Árni Johnsen. Hvernig er hægt að leyfa honum, dæmdum glæpamanni, að koma aftur inn í flokkinn og reyna að koma honum aftur á þing? Honum er bara klappað á öxlina, svonasvona Árni minn, allir gera mistök, komdu bara aftur. Nei, ég held ég geti ekki kosið þá, því þá er eins og mér finnist þetta bara allt í lagi! Þá er nú bara eitt eftir hjá mér.......skila auðu, kannski ég endi bara á því.

Helgin verður örugglega skemmtileg, það getur bara ekki annað verið. Mamma verður fimmtug á laugardaginn, þennan dag sem allt er að gerast. Það verður því væntanlega svaka partý og stuð frameftir öllu.

Bið ykkur vel að lifa, kveðja, Krullan

                                                                                     


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 18:52:09 / olikrull

Ching ching!!!

Sælt veri fólkið!

 Hef fengið nokkur skot á mig varðandi það hvað ég er innilega lélegur bloggari. Ég get því miður ekki neitað þessu....sest stundum niður við tölvuna, fingurnir komnir að lyklaborðinu....og þá frís ég, man ekkert og dettur ekkert í hug. Hef verið doltið duglegur að surfa netið undanfarið og skoða bloggsíður annarra. Sammi félagi minn er auðvitað konungur bloggara í mínum hug, færsla á hverjum degi, ávallt eitthvað sem áhugavert er að lesa, og hann er meira að segja kominn með heljarinnar aðdáendahóp, sem reyndar margir hverjir commenta undur dulnefnum....sem er doltið skondið. Ég myndi held ég ekki afbera það að fá mörg comment undir dulnefnum, er allt allt of forvitinn til að hafa mjög gaman af því.

En það er bara allt þokkalegt að frétta af manni. Er ótrúlega sáttur í nýju vinnunni minni og meira að segja farinn að venjast næturvöktunum. Sit bara einn á skrifstofunni í rólegheitunum og hugleiði....eða ekki. Kláraði MCC námskeið um daginn. Fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er þetta námskeið sem fer í gegnum vinnuferli í "cockpit" flugvéla og kennir mönnum að vinna saman þar, þ.e. kennir samstarf tveggja flugmanna, samskipti, verkefnaskiptingu og þess háttar. Þetta var mjög skemmtilegt, og svo á ég bara eftir observe flug hjá Icelandair, það er partur af þessu líka. Stefnan er að komast með Gumma félaga mínum á sunnudaginn, hann á að fljúga á Osló, þaðan til Köben, gist þar í eina nótt og svo heim daginn eftir. Sakar sko ekki að geta rölt niður Strikið og fengið sér einn kaldan, en það kemur væntanlega í ljós í kvöld eða á morgun hvort það gangi upp. Ég hef annars ekki staðið mig sem skyldi í flugnáminu, meira að segja mjög líklegt að ég þurfi að taka meirihlutann af bóklegu prófunum aftur :( , en það er lítið annað við því að gera en að setjast aftur yfir bækurnar og massa þetta bara aftur. Hef doltið velt því fyrir mér hvað ég eigi að gera í þessu og hef komist að þeirri niðurstöðu að ég vill alls ekki gera neitt annað en að verða flugmaður.....og geri ég það bara hvað sem það kostar. :haha:

Mig langar í BMW.....veit ekki alveg af hverju en ég er alveg veikur þessa dagana. Fór á föstudaginn síðasta upp í B&L og skoðaði nýja línu sendibifreiða, spáði lítið í það en lá yfir Bimmunum í staðinn. Mig langar! Kannski maður skelli sér bara á eitt eintak í sumar þegar ég skila núverandi bílnum mínum, Hyundai Getz, sem ég er reyndar mjög hrifinn af fyrir utan það að það er alls ekki gott að keyra hann útá landi á veturna í snjó og hálku.

 Það er viðbjóðslegt veður úti og mig er farið að hlakka alveg óstjórnlega til sumarsins, vona innilega að það verði miklu betra en í fyrra, við eigum skilið endalausa sól og blíðu.

Svo er gaman að segja frá þvi að fyrsta barnið í vinahópnum á þessu ári fæddist um helgina, stoltu foreldrarnir eru Manda og Addi, óska ég þeim til hamingju með það. Ótrúlegt hvað vinir mínir eru frjósamir.....held að það séu í það minnsta 5 pör sem eiga von á strumpi á þessu ári.....hlutirnir heldur betur að breytast!!!

Bið að heilsa ykkur í bili, eigið góðar stundir.

 Kveðja, Krullan


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 17:12:14 / olikrull

Íslensk Hræsni!!!

Ég er svo hneykslaður núna að ég bara verð að koma þessu frá mér!!!

Nú er Hótel Saga búin að ákveða það að leyfa ekki gestum Snowgathering ráðstefunnar að gista á hóteli sínu og í framhaldi af því ákváðu þau að hætta við fyrirhugaða "klámráðstefnu" sína hér á landi og ætla að leita sér lögfræðiaðstoðar vegna málsins.

Ég er svo innilega ekki stoltur af því að vera Íslendingur núna, hverjir erum við að hreinlega úthýsa þessu fólki frá Íslandi, eingöngu byggt á fyrirvinnu þess??? Á Íslandi er selt klám...ríkið hagnast á því, við kaupum það, en NEI guð minn almáttugur að þetta fólk komi hingað, haldi nokkra fundi og njóti þess sem elsku Ísland hefur að bjóða!!! 8|   Okkur Íslendingum finnst það mörgum hverjum í góðu lagi að drepa hvali, veiða nokkur stykki, hver er skaðinn af því.....þeir éta allan fiskinn okkar. En stórir erlendir hópar eru svo innilega á móti þessu að þeir ganga svo langt að kalla okkur villimenn og morðingja, ekki bara þessa örfáu veiðimenn heldur alla þjóðina. Og við hneykslumst yfir þessum viðbrögðum.

Íslendingar gengu svo langt að bendla ráðstefnugesti við barnaklám og mansal, án þess að hafa nokkurn skapaðan hlut fyrir sér í því, lögreglan ætlaði að rannsaka málið.....af hverju? Er þá ekki rétt að kanna hvort þessir morðingjar, hvalveiðimennirnir á ég við, séu kannski líka að drepa fólk hér á landi....það er alls ekki ólíklegt. Væri ekki réttast að hefja lögreglurannsókn á félagi Feminista, þær berjast fyrir jafnrétti kynjanna, þó það megi oft líta á það þannig að þær vilji bara snúa dæminu við í nokkra tugi ára til að jafna það út.......en það er engin ástæða til að ætla að þær séu ekki að stunda eitthvað neðanjarðarbrask og jafnvel hryðjuverkastarfsemi!!!!

Finnst ykkur þetta í lagi, er svona hegðun Íslendinga eitthvað til að vera stoltur af?


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 13:18:33 / olikrull

Gleðilegt rigningarsumar!!!

Jæja, mikið rosalega byrjar sumarið vel, 2 dagar án rigningar í júní so far! Gaman að því. Ég ætla nú að reyna að blogga aðeins meira á næstunni, ef eitthvað skemmtilegt gerist.....right!!! 8|

En það væri nú kannski skemmtilegt að sjá hverjir eru að kíkja inn á síðuna, setjið inn eitthvað comment ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 10:36:34 / olikrull

Well Well

Jæja......mikið getur nú verið erfitt að halda úti svona bloggsíðu þegar maður hefur lítið að segja!! ;)  Maður gerir orðið eitthvað svo lítið að það er eiginlega sorglegt. En ég fór loksins að fljúga aftur í gær. Fór með Hinrik flugkennara í Cross Country og tókum við stefnuna á Höfn í Hornafirði. Veður var orðið frekar fúlt þannig að við komust ekki alla leið sökum þess að skýjahæðin var komin niður í 1000 fet og byrjað að rigna, samt kannski frekar slydda. Náðum að Ingólfshöfða og snerum svo við. Vindurinn var orðinn sterkur og við eiginlega bara fukum í bæinn og náðum inn rétt fyrir myrkur......þetta var fínt! :D

Svo er ég að fara til Baltimore á morgun, kem reyndar heim strax á laugardagsmorgun. Gummi var svo heavy nice að bjóða mér með svo ég fæ að sitja frammí með honum og captaininum fram og tilbaka.....það getur nú ekki orðið annað en gaman!  Bið að heilsa ykkur öllum í bili!!

Krullan


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 14447